. .

  

Fréttir og tilkynningar

2.9.2010
Selurinn í September

Komin er dagskrá septembermánaðar fyrir Selinn, fræðslu- og tómstundaklúbb fatlaðra.  Því miður er hnappurinn merktur SELURINN (hægra megin á skjá) eitthvað óvirkur.  Unnið er að því að laga það.  Á meðan er hægt að finna dagskránna með því að fara í "gagnlegar upplýsingar" og skoða þar "Selurinn".  

Hér má sjá dagskránna í september    

Lesa meira...
31.8.2010
Bæta þarf stjórnun og eftirlit með þjónustu við fatlaða

Frétt af vef Ríkisendurskoðunar

Samkvæmt nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar á þjónustu við fatlaða er úrbóta þörf í ýmsum málum í málaflokki fatlaðra. Bent er á að samþykkja þurfi heildarstefnu um þjónustu við fatlaða og að tryggja þurfi samræmi hennar milli stofnana og landshluta. Einnig þarf að efla allt eftirlit með starfseminni. Ýmsir veikleikar eru í skipulagi og stjórnun málaflokksins.

Lesa meira...
27.8.2010
Heimilið Birkimörk vinnur til verðlauna á Blómstrandi dögum

Fyrir stuttu síðan eða dagana 19.-22. ágúst var bæjarhátíðin Blómstrandi dagar haldin hátíðleg í Hveragerði.Undanfarin ár hefur skapast sú hefð að íbúar skreyta hús sín og garða meðan á hátíðinni stendur. Íbúar í Birkimörk 21-27 létu ekki sitt eftir liggja og skemmst er frá því að segja að uppskera þeirra var góð þar sem heimilið fékk verðlaun fyrir skreytingar sínar. 
Lesa meira...
27.8.2010
Ný norræn upplýsingasíða um notendastýrða persónulega aðstoð

Frétt af vef félags- og tryggingamálaráðuneytis:

Miðvikudaginn 25. ágúst opnaði Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra, nýja norræna upplýsingasíðu  um notendastýrða persónulega aðstoð fyrir fólk með fötlun. Allar Norðurlandaþjóðirnar stóðu saman að verkefninu undir stjórn Íslendinga og er síðan vistuð á vef félags- og tryggingamálaráðuneytisins: http://nordisk.felagsmalaraduneyti.is 

Hér má sjá fréttina í heild sinni.

Lesa meira...
26.8.2010
COPE-námskeið

COPE námskeið byrjar 14. september og er til 26. okt. 2010, í 7 skipti, alltaf á þriðjudögum kl. 17 – 19.
Námskeiðið er ætlað foreldrum barna á aldrinum 4-12 ára og geta foreldrar 15 til 18 barna sótt hvert námskeið. Námskeiðið nær yfir 7 vikur og er vikulega 2 klukkustundir í senn.

Lesa meira...
23.8.2010
Opinn dagur í Skaftholti

Laugardaginn 28.ágúst frá kl. 14:00 til kl. 17:00 verður opinn dagur í Skaftholti í Gnúpverjahreppi. 
Lífræn grænmetis- og veitingasala.
Allir velkomnir
23.8.2010
Vetrarstarfið hjá Suðra að hefjast

Frá stjórn Suðra:

Nú er vetrarstarfið að hefjast.  Æfingar í boccia byrja 24.ágúst og sundið þann 31.ágúst. 
Boccia verður á þriðjudögum kl. 17:00-18:30 í Iðu og fimmtudögum kl. 16:30-17:20 í íþróttahúsinu Vallaskóla/Sandvík.
Sundæfingarnar verða á þriðjudögum kl. 18:30-19:30 og miðvikudögum kl. 16:25-17:15.
Knattspyrnuæfingar halda áfram fram að móti sem verður 25.september.

Lesa meira...
18.8.2010
Sumarferð til Vestmannaeyja sunnudaginn 22.ágúst 2010

Tilkynning frá Sighvati og Sólveigu vegna sumarferðar:

Sumarferð Selsins til Vestmannaeyja sem fara átti nk. laugardag 21.ágúst hefur vegna ófyrirséðra aðstæðna verið frestað fram á sunnudag 22. ágúst og vonum við að það komi sér ekki illa fyrir félaga.  Við minnum á að rætt verður um ferðina í okkar samveru á morgun fimmtudaginn 19.ágúst í Selnum.

Með bestu kveðju,

Sighvatur og Sólveig
892-9700

Lesa meira...
17.8.2010
SIS-matið kynnt í sumar og framkvæmt í ágúst/september

Þessi frétt birtist áður á síðunni þann 20. júní 2010:

Fyrirlögn og stöðlun SIS-matsins (Supports Intensity Scale) er þáttur í undirbúningi á yfirfærslu málaflokks fatlaðra til sveitarfélaga en matið sjálft er fyrst og fremst ætlað að skilgreina þann viðbótarstuðning sem fullorðið fatlað fólk þarf á að halda til búsetu, vinnu og samfélagsþátttöku. Öllu fólki með fötlun á landinu sem njóta sérstakrar búsetuþjónustu verður boðin þátttaka. Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins (GRR) hefur haft umsjón með þýðingu SIS-matsins og stýrir staðalbindingu sem fer fram samhliða fyrirlögn matsins. Ábyrgðarmaður verkefnisins er dr. Tryggvi Sigurðsson, sviðsstjóri við GRR en verkstjóri er Guðný Stefánsdóttir, þroskaþjálfi. Skráning og úrvinnsla gagna er á vegum Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands. Þegar verkefninu lýkur munu frumgögn verða afhent þjónustuaðilum og munu þau nýtast við áframhaldandi uppbygginu á þjónustuþörf einstaklinga í búsetu á vegum SMFS. SIS-matið verður kynnt fyrir væntanlegum þátttakendum á þjónustusvæði SMFS í sumar og leitað eftir samþykki þeirra fyrir þátttöku. Byrjað er að meta af sérstökum matsmönnum.

Lesa meira...
13.8.2010
Lífrænir dagar á Sólheimum

Frétt af vef sunnlenska.is

Á morgun Laugardaginn 14. ágúst verður mikil hátíð á Sólheimum en þá er lokadagur á menningarhátíð Sólheima sem staðið hefur í allt sumar.

Lesa meira...
7.8.2010
Félagsleg liðveisla

Fyrir stuttu birtist hér á síðunni smá umfjöllun um ferðaþjónustu fatlaðra sem er verkefni sem sveitarfélög hafa verið með og varða málefni fatlaðra. Annað verkefni sem einnig hefur verið í höndum sveitarfélaga er félagsleg liðveisla. Fram kemur í X. Kafla 24 grein laga um málefni fatlaðra nr.59/1992  að “Sveitarfélög skulu eftir föngum gefa fötluðum kost á liðveislu. Með liðveislu er átt við persónulegan stuðning og aðstoð sem einkum miðar að því að rjúfa félagslega einangrun, t.d. aðstoð til að njóta menningar og félagslífs.”
Lesa meira...
7.8.2010
Héraðsmót fatlaðra í frjálsum íþróttum

Frétt úr Sunnlenska fréttablaðinu 5.ágúst

Héraðsmót í íþróttum fatlaðra var haldið á Laugarvatni 26.júli síðast liðinn.  Mótið var haldið samhliða Unglingamóti HSK 15-22 ára í frjálsum.

Lesa meira...
3.8.2010
Selurinn í ágúst

Dagskrá Selsins fyrir ágústmánuð er kominn inn.  Eins og áður má finna hana undir flipanum "SELURINN" hægra megin á skjá eða fara í "Gagnlegar upplýsingar" möguleikann á stikunni efst á skjá og velja þar "Selurinn"
Lesa meira...
29.7.2010
Ferðaþjónusta fatlaðra

Nú styttist í flutning á málefnum fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga. Undanfarin ár hafa sum verkefni í málaflokki fatlaðra verið á hendi sveitarfélaga meðan önnur eru á hendi ríkisins. Eitt af þeim verkefnum sem Sveitarfélög hafa sinnt undanfarin ár er ferðaþjónusta fatlaðra.
Lesa meira...
29.7.2010
Selurinn fékk styrk frá menningarráði Suðurlands 2010

Selurinn, fræðslu- og tómstundaklúbbur fatlaðra á Suðurlandi fékk 100.000 króna styrk frá menningarráði Suðurlands í ár. Klúbburinn sótti um styrk síðla vetrar til að efla leiklistarátakið sem klúbburinn fór út í frá áramótum.
Lesa meira...
26.7.2010
Selurinn fellur niður í dag

Vegna ófyrirséðna aðstæðna fellur Selurinn niður í dag mánudaginn 26.júlí.  Hittumst næsta fimmtudag.
Kveðja, Sighvatur og Sólveig

Lesa meira...
15.7.2010
Sumardvalir

Á sumrin er tími sumardvala en þá hafa einstaklingar með fötlun tækifæri til að nýta sér ýmis tilboð sem í boði eru víða um land. Langflest sumarorlofstilboð sem standa fólki með fötlun til boða á Íslandi eru rekin af einkaaðilum. Slík starfsemi fellur ekki undir lög um málefni fatlaðra eða lög um félagsþjónustu sveitarfélaga sem gerir það að verkum að erfitt er fyrir opinbera aðila að setja reglur um og hafa eftirlit með starfseminni eða gera kröfu um faglegt starf.
Lesa meira...
8.7.2010
Lokun á skrifstofu SMFS

Dagana 12.-16. júlí verður skrifstofa SMFS lokuð.  Hún opnar aftur mánudaginn 19. júlí kl. 08:00. 
Lesa meira...
8.7.2010
80 ára afmælishátíð Sólheima

Frétt af vef Sólheima:

Dagana 2.-5. júlí var mikil hátíð haldin á Sólheimum í tilefni af því að 80 ár voru liðin síðan Sesselja Hreindís Sigmundsdóttir hóf störf á Sólheimum.

Lesa meira...
6.7.2010
Samkomulag í höfn um fjárhagslegar forsendur fyrir flutningi málefna fatlaðra til sveitarfélaga

Fréttatilkynning
Tekist hefur samkomulag milli ríkis og sveitarfélaga um fjárhagslegar forsendur fyrir flutningi málefna fatlaðra til sveitarfélaganna 1. janúar 2011. Þetta er viðamesta endurskipulagning á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga frá flutningi grunnskólanna árið 1996. Tekjustofnar sem nema 10,7 milljörðum króna flytjast til sveitarfélaganna á næsta ári samhliða yfirfærslu málaflokksins.
Lesa meira...
6.7.2010
Blaðamannafundur í Stjórnarráðinu, málefni fatlaðra til sveitarfélaga

Frétt af vef Vísis:
Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar í Stjórnarráðinu klukkan tvö í dag í tilefni af undirritun samkomulags milli ríkis og sveitarfélaga um fjárhagslegar forsendur fyrir flutningi málefna fatlaðra til sveitarfélaganna 1. janúar 2011.

Samkvæmt tilkynningu frá forsætisráðuneytinu er um að ræða viðamestu endurskipulagningu á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga frá flutningi grunnskólans árið 1996.

Lesa meira...
4.7.2010
Sumarlokun hjá SMFS 2010 og Selurinn í júlí

Minnt er á sumarlokun hjá SMFS nú í sumar.  Skammtímavistun Álftarima og Viss á Selfossi og í Þorlákshöfn er nú lokað vegna sumarleyfa.

Skrifstofa SMFS verður lokuð vikuna 12.-16. júlí.

Dagskrá Selsins fyrir júlí er komin inn, sjá má dagskránna undir hnappinum "SELURINN" hægra megin á skjá.

Lesa meira...
1.7.2010
Frétt frá Viss á Selfossi

Viss, vinnu- og hæfingarstöð á Selfossi hefur alla tíð sinnt verkefnum fyrir fyrirtæki og stofnanir og hafa þau verkefni verið mörg og ólík.  Nú nýverið tók Viss að sér tvö ný verkefni, tepökkun og sápuþæfingu.
Lesa meira...
30.6.2010
Tilfærsla á málefnum fatlaðra

Í fundargerð 434.fundar stjórnar SASS (Samtök sunnlenskra sveitarfélaga) sem haldinn var föstudaginn 25.júní kemur fram að framkvæmdastjóri SASS, Þorvarður Hjaltason, skýrði frá yfirliti um afstöðu aðildarsveitarfélaga til tillögu um sameiginlegt þjónustusvæði á starfssvæði SASS.
Lesa meira...
23.6.2010
Sumarlokun hjá SMFS 2010

Skammtímavistun Álftarima verður lokuð frá dags: 02. júlí - 26. júlí.  Sumardvöl byrjar 28. júlí.

Viss, vinnu- og hæfingarstöðvar á Selfossi og í Þorlákshöfn verða lokaðar frá dags: 05. júlí - 30. júlí.  Staðirnir opna aftur 3. ágúst.

Skrifstofa SMFS veður lokuð vikuna 12.-16. júlí.  Opnar aftur mánudaginn 19. júlí kl. 08:00.

Lesa meira...
20.6.2010
SIS-matið kynnt í sumar og framkvæmt í ágúst/september

Fyrirlögn og stöðlun SIS-matsins (Supports Intensity Scale) er þáttur í undirbúningi á yfirfærslu málaflokks fatlaðra til sveitarfélaga en matið sjálft er fyrst og fremst ætlað að skilgreina þann viðbótarstuðning sem fullorðið fatlað fólk þarf á að halda til búsetu, vinnu og samfélagsþátttöku. Öllu fólki með fötlun á landinu sem njóta sérstakrar búsetuþjónustu verður boðin þátttaka. Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins (GRR) hefur haft umsjón með þýðingu SIS-matsins og stýrir staðalbindingu sem fer fram samhliða fyrirlögn matsins. Ábyrgðarmaður verkefnisins er dr. Tryggvi Sigurðsson, sviðsstjóri við GRR en verkstjóri er Guðný Stefánsdóttir, þroskaþjálfi. Skráning og úrvinnsla gagna er á vegum Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands. Þegar verkefninu lýkur munu frumgögn verða afhent þjónustuaðilum og munu þau nýtast við áframhaldandi uppbygginu á þjónustuþörf einstaklinga í búsetu á vegum SMFS. SIS-matið verður kynnt fyrir væntanlegum þátttakendum á þjónustusvæði SMFS í sumar og leitað eftir samþykki þeirra fyrir þátttöku. Matið verður væntanlega framkvæmt í ágúst – september af sérstökum matsmönnum.
Lesa meira...
15.6.2010
Íslandsmót ÍF í frjálsum íþróttum utanhúss

Laugardaginn 5. júní fóru 7 keppendur frá Suðra, Íþróttafélagi fatlaðra á Suðurlandi, á Íslandsmót ÍF í frjálsum íþróttum utanhúss.
Lesa meira...
12.6.2010
2010 Evrópuár gegn fátækt og félagslegri einangrun


Af vef Félags- og tryggingamálaráðuneytis:
Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra, úthlutaði í maí styrkjum úr sjóð sem stofnaður var í tilefni Evrópuársins 2010 sem tileinkað er baráttunni gegn fátækt og félagslegri einangrun.  Alls bárust 84 umsóknir og sótt var um alls 208.260.113 kr. Í heildina hlutu 21 verkefni og rannsóknir styrki úr sjóðnum og munu þau koma til framkvæmda á þessu ári.  Úthlutað var 30.188.000 kr. úr sjóðnum.

Lesa meira...
10.6.2010
Fréttir vegna yfirfærslunnar

Stjórn SASS hefur lagt fram drög að yfirlýsingu um myndun sameiginlegs þjónustusvæðis um málefni fatlaðra.  Tillagan gerir ráð fyrir að stofnað verði sérstakt þjónusturáð sem sér um daglega stjórnun og samhæfingu þjónustunnar en félagsþjónusturnar verða efldar og munu sinna öllum jafnt. 
Lesa meira...
8.6.2010
Nýliðanámskeið SMFS

Fimmtudaginn 3. júní s.l. var haldið námskeið fyrir nýtt starfsfólk SMFS.
Lesa meira...
5.6.2010
Notendastýrð persónuleg aðstoð

Á vef alþingis má finna tillögu að þingsályktun um notendastýrða persónulega aðstoð . Þar kemur fram að: “Alþingi ályktar að fela félags- og tryggingamálaráðherra að koma á fót notendastýrðri persónulegri aðstoð við fatlað fólk á Íslandi með það að markmiði að fatlað fólk geti almennt notið sjálfstæðis í lífi sínu til jafns við ófatlað fólk. Ráðherra leggi fram tillögu að útfærslu á þjónustunni ásamt frumvarpi til nauðsynlegra lagabreytinga á haustþingi 2010.
Lesa meira...
5.6.2010
Ársskýrsla SMFS 2009

Ársskýrsla SMFS fyrir árið 2009 er nú komin út og gefur hún yfirlit yfir starfsemi SMFS fyrir árið 2009.  Skýrsluna má finna undir flipanum "Um okkur" - "Ársskýrsla"
Lesa meira...
1.6.2010
Selurinn í júní og Suðri í sumar

Komin er inn dagskrá fyrir Selinn í júní mánuði.  Einnig eru komnar upplýsingar um æfingar hjá Suðra í sumar.
Lesa meira...
29.5.2010
Orlofshús á Selfossi

Frá Þroskahjálp á Selfossi:

Til sumarleigu er frábært orlofshús sem staðsett er á Selfossi.  Gott hjólastólaaðgengi, sjúkrarúm, fjögur herbergi, leigt í viku í senn (frá föstudegi kl. 16 til föstudags kl.13).

Orlofshúsið, sem er í eigu Þroskahjálpar á Suðurlandi, stendur félagsmönnum hagsmunasamtaka til boða á góðu verði sem er 20 þúsund kr. á viku. 

Lesa meira...
27.5.2010
Fjölmennt skólaslit

Skólaslit Fjölmenntar á Selfossi verða mánudaginn 31. maí kl. 16:15 að Eyravegi 67.
21.5.2010
Starfsfólk SMFS á skyndihjálparnámskeiði

Um 80% starfsmanna SMFS mætti á skyndihjálparnámskeið sem haldið var á dögunum. 
Lesa meira...
9.5.2010
Stúlkan sem hvarf - leiksýning

Eins og fram hefur komið er Selurinn, fræðslu- og tómstundaklúbbur fatlaðra, að æfa leikrit sem sýnt verður á Vor í Árborg.  Ég (umsjónarmaður síðunnar) leit við inn á æfingu hjá þeim síðastliðinn mánudag 3.maí.  Sýningin er spunaleikrit sem hópurinn vinnur í sameiningu ásamt Ólafi Guðmundssyni en hann er leikstjóri verksins.  Mjög gaman var að kíkja á æfingu og átti ég erfitt með að fara af æfingunni þar sem ég varð alveg stórhrifin af umgjörð sýningarinnar og hvernig hópurinn vinnur að henni. 
Lesa meira...
2.5.2010
Tónleikar með kór Fjölmenntar og Ingó

Frétt úr Dagskránni 29. apríl 2010:

Miðvikudaginn 5. maí mun kór Fjölmenntar ásamt Ingó flytja nokkur lög á tónleikum í félagsheimili Karlakórs Selfoss, Eyravegi 67, kl. 16:30.  Aðgangseyrir er 800 krónur.  Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir. 

Lesa meira...
2.5.2010
Leiksýning hjá Selnum

Selurinn, fræðslu- og tómstundaklúbbur fatlaðra, æfir nú leikrit sem sýnt verður á Vor í Árborg.  Stefnan er tekin á sýningu Sunnudaginn 16. maí.  
Lesa meira...
24.4.2010
Ráðstefna útskriftarnema í þroskaþjálfafræðum

Tekið af  vef Háskóla Íslands

Árleg ráðstefna nemenda á lokaári í þroskaþjálfafræði fer fram í Skriðu dagana 26. og 27. apríl. Þar munu útskriftarnemar kynna lokaverkefni sín til BA gráðu.

Lesa meira...
23.4.2010
Fjölmennt Selfossi - umsóknir haust 2010

Byrjað er að taka á móti umsóknum í Fjölmennt á Selfossi fyrir haustið 2010. 
Lesa meira...
17.4.2010
Drepstokkur - menningarhátíð ungs fólks á Suðurlandi

Nú er í gangi menningarhátíð ungs fólks á Suðurlandi í Pakkhúsinu, ungmennahúsi Árborgar á Selfossi.  Hátíðin stendur til loka sunnudagsins 18. apríl.
Lesa meira...
17.4.2010
80 milljónum króna úthlutað í styrki til að efla nærþjónustu við börn

Af vef félags- og tryggingamálaráðuneytisins.

Verkefnisstjórn hefur ákveðið úthlutun styrkja til verkefna sem ætlað er að efla þjónustu í heimabyggð við langveik börn og börn með athuglisbrest og ofvirkni.  Úthlutað verður 80 milljónum króna til fjölbreyttra verkefna um allt land.

Lesa meira...
9.4.2010
Selurinn í apríl

Dagskrá fræðslu- og tómstundaklúbbsins Selurinn fyrir aprílmánuð er komin.  Dagskráin einkennist af miklu leiklistarátaki sem gert er ráð fyrir að ljúki um miðja maímánuð á ,,Vor í Árborg" hátíðinni. 
Lesa meira...
9.4.2010
Fróðlegt lesefni

Á síðu Þroskahjálpar má finna fróðlegt lesefni vegna yfirfærslu á málefnum fatlaðra til sveitarfélaganna.  Hér koma áhugaverðar slóðir.
Lesa meira...
9.4.2010
Nýr félagsþjónustufulltrúi hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga

Á síðu sambands íslenskra sveitarfélaga má sjá að gengið hefur verið frá ráðningu í starf félagsþjónustufulltrúa hjá sambandinu. 
Lesa meira...
30.3.2010
Yfirfærsla á málaflokki fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga

Svæðisskrifstofan hefur boðað til kynningarfunda hjá öllum félagsþjónustum á Suðurlandi sem liður í undirbúningi á yfirfærslu málaflokksins frá ríki til sveitarfélaga. Félagsþjónusturnar sem heimsóttar voru eru fimm talsins. Fulltrúar Svæðisskrifstofunnar hittu fulltrúa félagsþjónustunnar og sveitarfélaganna á hverju svæði fyrir sig og kynntu starfsemi Svæðisskrifstofunnar auk þess að afhenda stöðuskýrsla með tölulegum upplýsingum um starfsemina.
Lesa meira...
26.3.2010
Sveinn sá fæddist upp

eftir Finnboga Hermannsson
Eftirfarandi grein birtist í morgunblaðinu.  Höfundur hennar gaf góðfúslegt leyfi fyrir birtingu hennar hér.  Greinina má einnig finna í greinasafni síðunnar undir fróðleikur - fræðsluefni.


Eftir Finnboga Hermannsson: "Manni kom í hug fæðing Magnúsar góða, þegar sveinbarn Rúnarsson fæddist 12. nóvember anno domini 2001."

„HÚN FÆDDI sveinbarn, og var það um hríð, er þau vissu óglöggt, hvort líf var með barninu. En er barnið skaut öndu upp og allómáttuglega, þá bað prestur Sighvat að fara að segja konungi.“ Snorra Sturluson munaði ekki um að segja frá barnsfæðingu í skrifum sínum og þarna er að fæðast Magnús góði, sonur Ólafs Haraldssonar, sem hann átti með Álfhildi ambátt sinni árið 1024. Álfhildur kom illa niður, en allt slampaðist nú þetta, og drengurinn skaut upp öndu áður en yfir lauk og komst til fullorðinsára. Var meira að segja kallaður Magnús góði.

Lesa meira...
26.3.2010
Heilaheill - áfall er ekki endirinn

Vakin er athygli á heimasíðu Heilaheilla sem nýverið var endurnýjuð eftir um það bil fimm ára tímabil heilaheill.is .

Lesa meira...
23.3.2010
Fötlun í listum, menningu og fjölmiðlun

Í apríl mun námsbraut í fötlunarfræðum við Félagsvísindasvið Háskóla Íslands bjóða upp á námskeiðið Fötlun í listum, menningu og fjölmiðlum í samstarfi við Endurmenntun. Í námskeiðinu verður m.a. fjallað um ímyndir og hlutverk fatlaðs fólks í listum, dægurmenningu, fjölmiðlum og bókmenntum. Námskeiðið fer fram dagana 12, 15, 17, 26 og 29 apríl og er öllum opið. Frekari upplýsingar og skráning eru hjá endurmenntun.is  eða í síma 525-4444, eða hjá undirrituðum.

Með bestu kveðjum,
Hanna Björg Sigurjónsdóttir, dósent
Kristín Björnsdóttir, aðjúnkt
námsbraut í fötlunarfræðum

Lesa meira...



Prenta þessa síðu

Eyðublöð


 
 
 
 
 



Ýmislegt

Þjónusta leikfangasafna felur m.a. í sér ráðgjöf um fötlun barna og þroska þeirra. Á svæðisskrifstofu er einnig veitt sérhæfð ráðgjöf um leikfangaval, lánuð eru út sérhæfð leikföng/þjálfunargögn og fötluð börn geta komið í þjálfun.

SMFS