|
Um okkur >
Um okkur
Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra Suðurlandi (SMFS) Markmið með þjónustu svæðisskrifstofa málefna fatlaðra er að tryggja fólki með fötlun jafnrétti og sambærileg lífskjör á við aðra þjóðfélagsþegna og að vinna að því að sköpuð séu þau skilyrði sem fatlað fólk þarf til að lifa eðlilegu lífi. · SMFS starfar skv. lögum nr.59/1992 um málefni fatlaðra. · SMFS starfar í umboði félagsmálaráðuneytisins og er ábyrg gagnvart því í verkum sínum. · Hlutverk og verkefni SMFS eru tilgreind í lögunum og í reglugerðum. Einkunnarorð Svæðisskrifstofunnar hefur um langan tíma verið tækifæri-þátttaka-lífsgæði og öll starfsemi miðuð við það.
Tækifæri til þátttöku felur í sér aukin lífsgæði þeirra sem í hlut eiga. Nánari upplýsingar má finna á vefsíðu Félags- og tryggingamálaráðuneytisins |
