. .

Velkomin á heimasíðu Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra Suðurlandi

Svæðisskrifstofan veitir fólki með fötlun ýmiskonar  þjónustu. Með fötlun er hér einkum átt við þroskahömlun, geðfötlun, hreyfihömlun og sjón- og heyrnarskerðingu. Einstaklingar og fjölskyldur fatlaðs fólks og þeir sem veita þeim þjónustu geta leitað til svæðisskrifstofu

Þjónustusvæði Svæðisskrifstofu Suðurlands nær yfir þrjár sýslur, Árnessýslu, Rangárvallasýslu og V-Skaftafellssýslu. Á hennar vegum eru starfræktar sjö þjónustueiningar.

• Skrifstofan þar sem m.a. er veitt ráðgjafarþjónusta
• Tvö heimili/þjónustuíbúðir á Selfossi, eitt í Hveragerði og eitt í Þorlákshöfn
• Þjónustumiðstöð Álftarima 2 Selfossi - skammtímavistun og þjónusta við sjálfstæða búsetu 
• Vinnu- og hæfingarstöð á Selfossi og útibú í Þorlákshöfn 
 


Fréttir og tilkynningar

Selurinn í September
Komin er dagskrá septembermánaðar fyrir Selinn, fræðslu- og tómstundaklúbb fatlaðra.  Því miður er hnappurinn merktur SELURINN (hægra megin á skjá) eitthvað óvirkur.  Unnið er að því að laga það.  Á meðan er hægt að finna dagskránna með því að fara í "gagnlegar upplýsingar" og skoða þar "Selurinn".  

Hér má sjá dagskránna í september    

Lesa meira..

Bæta þarf stjórnun og eftirlit með þjónustu við fatlaða
Frétt af vef Ríkisendurskoðunar

Samkvæmt nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar á þjónustu við fatlaða er úrbóta þörf í ýmsum málum í málaflokki fatlaðra. Bent er á að samþykkja þurfi heildarstefnu um þjónustu við fatlaða og að tryggja þurfi samræmi hennar milli stofnana og landshluta. Einnig þarf að efla allt eftirlit með starfseminni. Ýmsir veikleikar eru í skipulagi og stjórnun málaflokksins.

Lesa meira..

Sjá allar fréttir

Eyðublöð


 
 
 
 
 



Ýmislegt

Foreldrar, aðstandendur og þeir sem veita fötluðum börnum þjónustu, eiga kost á stuðningi, leiðbeiningum og ráðgjöf hjá svæðisskrifstofu.

SMFS