Fréttir og tilkynningar
Selurinn fékk styrk frá menningarráði Suðurlands 2010
Selurinn, fræðslu- og tómstundaklúbbur fatlaðra á Suðurlandi fékk 100.000 króna styrk frá menningarráði Suðurlands í ár. Klúbburinn sótti um styrk síðla vetrar til að efla leiklistarátakið sem klúbburinn fór út í frá áramótum.
Sighvatur og Sólveig, umsjónarmenn klúbbsins, sögðu í samtali við umsjónarmann síðu að: ,,ánægjulegt hefði verið að fá þetta framlag til að gera átakið betur úr garði”. Átakið hefði tekist vel en því lauk með leiksýningu á hátíðinni ”Vor í Árborg”. Þar sýndi hópurinn spunaleikrit sem hann vann í sameiningu með Ólafi Guðmundssyni leikstjóra verksins. Leikritið fékk nafnið ”stúlkan sem hvarf” og fjallar eins og nafnið bendir til um stúlku sem hverfur. Á vegi hennar varð margt áhugavert eins og undarlegur skógur, prins bjartsýninnar og drottning. Sýningin var vel sótt, svo vel að þeir sem síðastir mættu þurftu að standa en það kom ekki að sök enda stórskemmtileg sýning þarna á ferð og lófataki ætlaði varla að linna að lokinni sýningu.
Selurinn starfar af fullum krafti í sumar, klúbbmeðlimir hittast tvisvar í viku og margt er gert eins og sjá má í dagskránni sem birtist fyrir hvern mánuð undir flipanum um Selinn (hægra megin á skjá). Meðal þess sem á dagskrá hefur verið í sumar er billjard, spilamennska, ljósmyndasýning úr starfinu, kaffihúsarölt, farið út að borða, spjall og skyndihjálparnámskeið.
Til baka

