. .

Velkomin á heimasíðu Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra Suðurlandi

Svæðisskrifstofan veitir fólki með fötlun ýmiskonar  þjónustu. Með fötlun er hér einkum átt við þroskahömlun, geðfötlun, hreyfihömlun og sjón- og heyrnarskerðingu. Einstaklingar og fjölskyldur fatlaðs fólks og þeir sem veita þeim þjónustu geta leitað til svæðisskrifstofu

Þjónustusvæði Svæðisskrifstofu Suðurlands nær yfir þrjár sýslur, Árnessýslu, Rangárvallasýslu og V-Skaftafellssýslu. Á hennar vegum eru starfræktar sjö þjónustueiningar.

• Skrifstofan þar sem m.a. er veitt ráðgjafarþjónusta
• Tvö heimili/þjónustuíbúðir á Selfossi, eitt í Hveragerði og eitt í Þorlákshöfn
• Þjónustumiðstöð Álftarima 2 Selfossi - skammtímavistun og þjónusta við sjálfstæða búsetu 
• Vinnu- og hæfingarstöð á Selfossi og útibú í Þorlákshöfn 
 


Fréttir og tilkynningar

Ferðaþjónusta fatlaðra
Nú styttist í flutning á málefnum fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga. Undanfarin ár hafa sum verkefni í málaflokki fatlaðra verið á hendi sveitarfélaga meðan önnur eru á hendi ríkisins. Eitt af þeim verkefnum sem Sveitarfélög hafa sinnt undanfarin ár er ferðaþjónusta fatlaðra.
Lesa meira..

Selurinn fékk styrk frá menningarráði Suðurlands 2010
Selurinn, fræðslu- og tómstundaklúbbur fatlaðra á Suðurlandi fékk 100.000 króna styrk frá menningarráði Suðurlands í ár. Klúbburinn sótti um styrk síðla vetrar til að efla leiklistarátakið sem klúbburinn fór út í frá áramótum.
Lesa meira..

Sjá allar fréttir

Eyðublöð


 
 
 
 
 



Ýmislegt

Starfsmenn svæðisskrifstofa eru bundnir þagnarskyldu og fjalla ekki um einstök mál við óviðkomandi.

SMFS